elvagestsdottir.blogspot.com
Elva Gests: August 2006
http://elvagestsdottir.blogspot.com/2006_08_01_archive.html
Friday, August 25, 2006. Ég ætla að segja ykkur brandara, en hann er svona. Veist þú af hverju Hafnfirðingar standa alltaf úti á svölum þegar það eru þrumur og eldingar? Það er vegna þess að þeir halda að Guð sé að taka mynd af þeim". HA HA HA HA HA HA. Það er bara gaman að vera stór stelpa. Ég vona að ykkur hlakki líka til að verða stór. Sumir sem eru orðnir stórir, finnst það örugglega líka. Allavegana fyrsta daginn. Posted by Elva Gests @ 10:06 AM. Monday, August 21, 2006. Í dag fór ég í nornabúðina&#...
elvagestsdottir.blogspot.com
Elva Gests: December 2007
http://elvagestsdottir.blogspot.com/2007_12_01_archive.html
Wednesday, December 12, 2007. 23 desember árið 2007 gerist dálítið merkilegt. Ég fer alein í flugvél. Ég hef heyrt að maður fái alveg ofboðslega mikla athygli. Það er alltaf gaman að fara í flugvél og fá mikla athygli, en mamma mín fer 19. desember og ég verð í 15 daga og hún í 19 daga í Danmörku. Ég hugsa mér að flugfreyjurnar fari fram og til baka og segi: er allt í lagi? Ég fæ leikfangatösku með mér og hún verður full af fjöri. Posted by Elva Gests @ 1:04 PM. View my complete profile. Litli brà à ir.
gestsson.blogspot.com
Gestsson: June 2007
http://gestsson.blogspot.com/2007_06_01_archive.html
Monday, June 04, 2007. Ég er orðinn svo rosalega stór. Kann orðið að stríða og er alltaf að æfa mig í því. Posted by Gestsson @ 4:43 PM. Jólin, forsetinn og rakettur. Fimmtán mánaða á fleygiferð. Orðinn ársgamall. Stækka sífellt meira. Gleðileg jól. Fanný nanný sannar ágæti sitt. 5 mánaða! Réttir og flensa.
gestsson.blogspot.com
Gestsson: November 2006
http://gestsson.blogspot.com/2006_11_01_archive.html
Friday, November 10, 2006. Ég er búinn að fá svona lík fínan stól og farinn að sitja við eldhúsborðið ásamt öðru heimilisfólki. Ég er búinn að læra að velta mér og nú er næst að læra að skríða. Ég er nú þegar farinn að sýna smá takta í þá átt, en þegar ég næ tökum á því er eins gott að pabbi og mamma haldi smádóti í burtu svo ég setji það ekki upp í mig. Posted by Gestsson @ 2:12 PM. Jólin, forsetinn og rakettur. Fimmtán mánaða á fleygiferð. Orðinn ársgamall. Stækka sífellt meira. Gleðileg jól.
gestsson.blogspot.com
Gestsson: August 2006
http://gestsson.blogspot.com/2006_08_01_archive.html
Friday, August 25, 2006. Maður stækkar og stækkar og lærir meira og meira. Mamma og pabbi vilja endilega ná myndum af mér brosandi, en það er ekki alveg auðvelt að brosa, því maður áttar sig jú á því að þetta tæki sem þau taka myndirnar með gefur frá sér ljósblossa sem fer illa í augun. Þess vegna er eðlilegt að manni sé ekki bros í huga þegar maður sér þau munda það. Mamma náði þó nokkrum brosmyndum. Ég fékk ömmu í heimsókn um daginn. Þá brosti ég svona til hennar. Og hún á móti. Gleðileg jól.
gestsson.blogspot.com
Gestsson: June 2006
http://gestsson.blogspot.com/2006_06_01_archive.html
Thursday, June 29, 2006. Í gær var heilmikið um að vera. Hjúkrunarkonan kom og vigtaði mig og skoðaði. Ég er orðinn 3.950 grömm, hef þyngst um 400 grömm á 6 dögum. Það er líklegast vegna þess að mér finnst ofsalega gott að drekka sem mest og vill helst vera sísaddur. Er alltaf að hugsa um það eiginlegast, þegar maginn er ekki að stríða mér með lofti og svoleiðis. Um kvöldið fór ég til Fanný frænku og Bjarna í grillpartý. Á boðstólnum fyrir mig var það sem mér finnst best, mjólk. Sunday, June 25, 2006.
elvagestsdottir.blogspot.com
Elva Gests: September 2007
http://elvagestsdottir.blogspot.com/2007_09_01_archive.html
Monday, September 24, 2007. Nú ætla ég að segja ykkur frá Londonferðinni minni. Fyrsta daginn þá fórum við frá Heathrow í neðanjarðarlest. Næst fórum við í leigubíl. Bílstjórinn sat hinu megin en við erum vön. Það var alveg stórkostlegt hótel og við vorum svo uppgefin að við fengum hótelkonuna til að gefa okkur kex og djús. Svo fórum við beinustu leið í háttinn. Posted by Elva Gests @ 1:29 PM. View my complete profile. Litli brà à ir. VigdÃs fà à ursystir. Nà legar fà rslur. Iacute; Danmörku.
elvagestsdottir.blogspot.com
Elva Gests: March 2007
http://elvagestsdottir.blogspot.com/2007_03_01_archive.html
Saturday, March 24, 2007. Nú er ég búin að læra að lesa. Það er ekkert svo erfitt, maður þarf bara að æfa sig svolitið, þá finnst manni það skítlétt. En ég er ekki búin að læra að skrifa í alvörunni, en samt er ég er búin að læra að skrifa nafnið mitt og ég er líka búin að læra að skrifa það með skrifstöfum. Posted by Elva Gests @ 11:05 AM. Friday, March 23, 2007. Ég er að fara að dansa ballett í Borgarleikhúsinu. Það eru 5 dagar þangað til og ég get ekki beðið! Posted by Elva Gests @ 4:39 AM.
elvagestsdottir.blogspot.com
Elva Gests: July 2006
http://elvagestsdottir.blogspot.com/2006_07_01_archive.html
Friday, July 07, 2006. Í gær vorum við úti í Heiðmörk að grilla með bestu vinum mínum sem heita Ylfa og Katja. Við lékum okkur saman mjög mikið og við fórum í pinkulítinn göngutúr aleinar. Geir bróðir þeirra fór í lengri göngutúr aleinn, villtist og þurfti að fá að hringja í pabba sinn úr síma frá einhverjum sem hann hitti. Þetta var rosalega gaman, við fórum í kubb. Ég var í liði með pabba og við unnum ALLT, bæði konurnar og krakkana. Posted by Elva Gests @ 4:54 AM. Tuesday, July 04, 2006. Litli brà à ir.